.:takk fyrir að ég kom:.

.:berglind:.

24.01.2008 13:16:09 / Berglind Ósk

Ég er svindlari!!!

Ok, ég svindlaði, ég horfði á leikinn í gær og er því hamingjusamari í dag! :) Er svona semi hjátrúarfull og ég held því fram að þeir bláu hafi verið málið!

 

Byrjaði annars daginn á að lesa yfir og laga bs ritgerð bóndans sem stefnir á útskrift núna í feb. Lýst alveg helvíti vel á þetta hjá honum og nú vonum við að fleiri séu sammála. Langur tími skrifa að líða undir lok og því verður skálað í kvöld.

 

Er annars í þessum skrifum að fylgjast með borgarstjórnarfundi í beinni og verð ég að segja að ég er ánægð með borgarbúa sem mæta og þora að segja sína skoðun, svona á þetta að vera!!! OKKAR REYKJAVÍK – OKKAR DAG Í REYKJAVÍK! Er ekki frá því að það sé smá Samfylkingarlykt af mér.

 

Annars er annar leikur í kvöld, veit ekki hvort ég á að svindla aftur, Spánn hræðir mig pínu en við sjáum til... :$


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 17:01:43 / Berglind Ósk

DJÖFULL!!!

Ég er eins óhamingjusöm og hægt er, offisíallí hætt að horfá EM í handbolta...!

:klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 23:46:04 / Berglind Ósk

Jæja!!!

Þá er komið að round 2, skora á ykkur öll til að stilla á rúv á lau. og jafnvel kjósa... þá meina ég kjósa rétt! ;) THANX!!!

http://youtube.com/watch?v=938OlO9lhS4

hér er smá preview

 

ykkar einlæg

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 20:09:18 / Berglind Ósk

SKAMM!!!

100 heimsóknir í dag en ekkert kvitt... skamm skamm...


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 02:53:14 / Berglind Ósk

Gleðileg jól og gleðilegt ár!!!

Jólin runnu ljúflega niður með steikinni, alltaf gott að komast aðeins í sveitasæluna og slappa af, það var líka gert til hins ýtrasta! ;) Mikið búið að borða (shit!), mikið búið að sitja með tærnar upp í loftið (shit!!) og mikið búið að sofa og þar með búin að snúa sólarhringnum við (shit!!!)!

En með nýju ári fær maður nýtt óskrifað blað í hendurnar sem verður að fara vel með.

Áramót gera mig meyra, ég sé fyrir mér þetta auða blað með 365 dögum á sem eru allir ætlaðir mér. Á sama tíma horfi ég á vel útfyllt blað seinasta árs og sé allt það sem er rauðmerkt og hefði mátt fara betur en gleðst yfir því sem ekkert er hakað við, það fór þá víst vel. Sem betur fer eru þessi góðu atriði fleiri en hin, maður er þá víst að þroskast.

2007 var erfitt ár. Gott fólk féll frá, erfiðar fregnir bárust nánast frá öllum vígstöðvum og þar af leiðandi lagðist maður í mikla naflaskoðun. Hvað er réttast að gera? Hvar er hentugast að búa? Hvað skal gera í skólamálum? Þetta, ásamt svo mörgu fleiru fer á óskráða blaðið og ég vona svo innilega að ég geti horft á þessi atriði óhökuð næstu áramót.

Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég hlakka svolítið til að takast á við að fylla blaðið mitt út, ég veit að það á eftir að taka á, ég veit það verður erfitt en ég trúi því jafnframt að þetta verði skemmtilegt, spennandi og gefandi verkefni.

TABULA RASA!!!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 23:36:41 / Berglind Ósk

...

Nú er ég búin í prófum og komin í jólafrí! ...jah eða a.m.k. skólajólafrí! Er sem sagt byrjuð að vinna í Meba frá 10-22 fram að alvöru jólafríinu sem byrjar þann 22. des, shit hvað ég hlakka til að fara heim!!! Endilega kíkið við í vinnunni minni ef þið eigið leið í Kringluna ;)

Er andlaus og þreytt núna þannig að ég sendi þetta með til að bæta það upp!!! :haha:

 http://www.elfyourself.com/?id=1371834035

Berglind að jólatjútta! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 13:42:33 / Berglind Ósk

7. desember

 

Jebbs, ég er að eldast! ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 22:38:33 / Berglind Ósk

JÆJA!!!

Ammlisveislan löngu búin og langar mig að byrja á því að þakka fyrir mig! Frábær í alla staði, fallegir pakkar og mikið sungið, fékk meira að segja söngatriði frá Meba stelpunum mínum! :) OG Heiðan mín fór meira að segja upp og söng!!! Verð samt að viðurkenna að minningum fer fækkandi þegar líður á kvöldið, gæti verið að viskíið og tekílað hafi þar eitthvað um að segja...

...við Heiða svo fínar með kórónurnar!...

Á föstudaginn næsta gerist það aftur á móti, þá er hið eiginlega ammli, veit ekki hvernig mér líður yfir því... kannksi soldið sigin...?

17. des. er eila líka pínu ammli því þá eru 25 ár síðan ég hitti mömmz í fyrsta skipti! :) Er einmitt í missjoni því tengdu, fékk þá flugu í höfuðið að hafa uppá þeim stelpum sem komu með mér til landsins á sínum tíma (erum sum sé 3 í heildina), leitið og þér munið finna var mottóið - og það gekk eftir! Þessar skvísur eru eila það næsta sem ég kemst í að kalla systur mínar og ég er eila bara soldið spennt!!! Á planinu er sem sagt að hittast og bera saman bækur okkar sem verður eflaust mjög áhugavert :)

...ponsu-Berglind... 

Er í jólaprófum núna í fyrsta skipti í 5 ár, var alveg búin að gleyma hvað prófskrekkur var, fékk að kenna á því í gær þegar ég sat blá í framan í andnauð rétt fyrir próf... oh en dásamlegur tími!

Fer að vinna í Meba strax eftir jólaprófin, hlakka eila bara soldið til að hitta alla og ekki veitir af að þyngja pyngjuna smá! Jólafrí byrjar svo offisíallí þann 22. des. en þá mun ég fara austur í foreldrafaðm sem er nottla alltaf best!


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 14:53:28 / Berglind Ósk

ÚÚPPPPS!!!

AMMLIÐ ER NOTTLA ÞANN 10. NÓVEMBER EKKI 10. OKTÓBER!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 23:19:43 / Berglind Ósk

Ammlispartí!!!

 

Heiða varð 25 ára þann 19. okt. og ég mun verða 25 þann 7. des. Sú dagsetning hentar alls ekki til veisluhalda þar sem það er í miðjum jólaprófum og ákváðum við að halda þá bara sameiginlegt partí næstu helgi!

Dagsetning: laugardagurinn 10. okt.

Staðsetning: karókístaðurinn Ölver

Klukkan: ca. 20:00

Það verður bjór í boði – fyrstur kemur, fyrstur fær!!! ;) Svo verða tilboð á barnum til hálf tólf og öllum velkomið að grípa mækinn! Einnig er velkomið að taka með sér gest(-i) :)

Endla látið vita af komu ykkar í síma: 869-0729

Sjáumst í stuði!!! ;)

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 21:27:08 / Berglind Ósk

2. nóvember

Sit hér heima á föstudagskvöldi, karlmannslaus og þar af leiðandi nærbuxnalaus. Karl er fyrir austan og nærbuxur eru óhreinar.

Meðan ég rita þessi orð rennur þáttur Loga Bergmanns á stöð 2, ég er gædd þeim hentugu hæfileikum að geta horft á sjónvarp með hnakkanum á meðan ég er í tölvunni! Sniðugt ekki satt?!! ;) En ok, hún Keití Melúa (veit EKKERT hvernig þetta er skrifað!!!) er að mæma í sjónvarpinu... Hugguleg snót, það verður ekki af henni tekið en ó mæ hvað ég þoli ekki lagið hennar sem er alltaf í útvarpinu þessa daganna, æ þetta „if I were a sailboat I would sail you to the shore...“. Ok lagið er svo sem ágætt en textinn er svo klénn og tjísí að það hálfa væri hellingur!!!

Fór á deit í hádeginu í dag, aðeins að nýta mér það að vera „síngúl“, fór ásamt stelpunum í tanntækninni og kennaranum okkar og var þetta gífurlega hressandi! Kjút og kátar stelpur sem tala hátt og mikið OG hlægja mikið, ég hef fundið mig!!! ;)

Næstu helgi mun gleðin taka völd en þá höldum við Heiða vinkona uppá samanlagt 50 ára ammli! Ok, ég veit að ég á ekki ammli fyrr en í des. en málið er að 7 des. lendir í miðri jólaprófatörn þannig við ákváðum að slá þessu saman og finna dagsetningu sem væri svona mitt á milli okkar. Sneddí!!!

Auglýst síðar...

ég og Heiða (ammlisbörnin! ;p) einhvern tímann í lok seinustu aldar ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 01:10:57 / Berglind Ósk

Takk!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 14:45:48 / Berglind Ósk

Smá beiðni!!!

Jæja fólk, ég hvet ykkur til að horfa á Laugardagslögin (sem er á RÚV á laugardögum, undankeppni fyrir júróvisíon) þann 20. október og jafnvel kjósa – RÉTT, þá yrði ég voða glöð!

Með fyrirfram þökk, ykkar einlæg

Berglind Ósk


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 16:25:57 / Berglind Ósk

18. sept

Skólinn gengur glimrandi vel og er skemmtilegur, læri margt ó svo nýtilegt á hverjum degi og kem heim eftir skóla að springa úr fróðleik sem ég síðan æli yfir Hafþór og aðra nærstadda. Sagði t.d Sessu, eflaust svona hundrað sinnum, á Hjálmatónleikum fyrir stuttu að í einu grammi af munnvatni eru um 100 milljarðar af bakteríum!!! Ekki fleiri sleikar í bili held ég...

Fórum á Franz Ferdinand tónleika um helgina liðnu sem voru geggjaðir! Sveitt og góð stemmning á Nasa þar sem við Olli Peters plöntuðum okkur saman á koll og tjúttuðum eins og enginn væri morgundagurinn!

Var annars með fyrirlestur í morgunn í siðfræði sem gekk svona la-la, er ekki mikið fyrir að standa fyrir framan fólk og tala... Hmm, jú reyndar, en ekki undir þessum kringumstæðum, svona eftir á að hyggja þá hef ég ekki hugmynd um hvað ég var að blaðra, mér sortnaði fyrir augum, það suðaði í eyrum og hjartað fór á milljón, einkunn í næstu viku...

Ma & pa eru að koma núna um helgina og voru svo elskuleg að bjóða mér og manni mínum með sér á árshátíð á Broadway. Þar verður eflaust margt um manninn þannig maður verður víst að dusta rykið af fína kjólnum og dansskónum, hlakka til að fá veislumat – ókeypis! Takk pabbz!!! :)

Annars er bara eilífur lærdómur, próf í hverri viku nánast þannig að maður er á tánum alla daga, sem er samt skemmtilegt og það finnst mér góð tilbreyting :) Svo er eitthvað sem kallast vetrarfrí að skella á í byrjun okt. og þá huxa ég að ég skelli mér heim í foreldrahús. Já svo er nú líka sumarbústaðarferð í deiglunni með mínum heittelskaða sem verður voða notó!

Þar til næst


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 16:50:21 / Berglind Ósk

Hæbbs!

Jæja, nokkur orð...

Ef ég reyni að koma sumrinu á blað í MJÖG grófum dráttum þá mun það vera í punktaformi (frekar langir punktar reyndar!) so here goes:

...fór á Deep Purple og Uriah Heep tónleika í Höllinni á hvítasunnunni sem var skemmtilegt...

...fórum hjúin á Kelduna sem var nottla bara algjör snilld út í gegn, MUSE standa samt alveg klárlega uppúr sem það fallegasta og besta sem ég hef upplifað og heyrt...
(ég og Hafþór þreytt og tussuleg á Keldunni)

 

...fórum í brúðkaup hjá Árna Kristjáni og Guðrúnu þann 21. júlí sem var bæði fallegt og skemmtilegt. Geðveik staðsetning, frábær matur og falleg brúðhjón – fullkomið...
(fallegu brúðhjónin og skottið hún Rakel)

 

...helgina eftir það hentumst við austur, nánar tiltekið á Borgarfjörð Eystri á bræðslutónleikana. Þar var margt um manninn og mörg bönd að troða upp þannig úr varð hina ágætasta skemmtun en það besta við þetta allt var nottla bara að komast í fegurðina og kyrrðina sem einkennir staðinn. Áttum líka skemmtilegtan dinner á laugardeginum þar sem mamma og pabbi komu niðureftir og átum við saman þetta dýrindis grillkjöt sem Bryndís „tengdó“ framreiddi...

...svo var nú bara komið að verslunarmannahelginni og héldum við galvösk til Eyja með um 200 eyjaboli farteskinu sem seldust eins og heitar lummur sökum sjarma og sölutækni Hafþórs. Þar af leiðandi þurftum við ekki að blæða fyrir neinu, hvorki áfengi, mat né gistingu og komum meira að segja með þó nokkurn gróða heim...
(eyddi tímanum í Eyjum með Sessu og Þórörnu sem eru bæði hressar og skemmtilegar!)

 

...eftir versló var svo haldið austur á land í annað sinn þar sem Hafþór var að fara að guide-a gönguhóp á Borgarfirði og ég á leið í afslöppun í foreldrahúsum. Við mamma fórum í berjamó (ég fékk berjadrullu sökum ofáts!), lerkisveppatýnslu sem var frekar skondin en mjög skemmtileg og svo ákvað ég að skella mér með Hafþóri og hópnum eina gönguleið og varð Stórurð fyrir valinu og ekki varð ég svikin! Dásamlega falleg náttúra í geðveiku veðri (erum að tala um sól og steikjandi hita!) með manninum mínum er bara eitthvað sem klikkar aldrei, fullkomið!

...flugum suður 11. ágúst til að taka þátt í Gay-pridegöngunni sem fram fór í dásamlegu veðri. Hlömmuðum okkur á Arnarhól og Hafþór svaf þar af sér skemmtiatriðin...
(ég og Heiða að sleikja sólina á Gay-pride)

 

...menningarnótt (-degi) var varið í Dillon-garðinum með manninum, Heimi og Heiðu þar sem við áttum í heilögu stríði við risavaxna geitunga og horfðum á þroskaheft fólk skemmta, þar á meðal Stjána stuð sem spilaði á kúst sem var snilld. Minnið fer svo af undarlegum ástæðum að dofna eftir því sem leið á daginn og kvöldið...

Er sem sagt byrjuð í skólanum sem er eila alveg geggjað gaman! Var svo feimin fyrst að ég var við það að kúka á mig og fá andarteppu en það er allt að koma, segi líka eins og litlu börnin „ég er búin að eignast vinkonu í skólanum“! :) Hvimleitt að svona feimni skuli ekki hverfa úr manni, gamalli kerlingunni en svona er nú það!

Nóg í bili, heyrumst síðar!


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
.:skólastelpur:.
.:mæspeisið mitt:.