Jólin runnu ljúflega niður með steikinni, alltaf gott að komast aðeins í sveitasæluna og slappa af, það var líka gert til hins ýtrasta!
Mikið búið að borða (shit!), mikið búið að sitja með tærnar upp í loftið (shit!!) og mikið búið að sofa og þar með búin að snúa sólarhringnum við (shit!!!)!
En með nýju ári fær maður nýtt óskrifað blað í hendurnar sem verður að fara vel með.
Áramót gera mig meyra, ég sé fyrir mér þetta auða blað með 365 dögum á sem eru allir ætlaðir mér. Á sama tíma horfi ég á vel útfyllt blað seinasta árs og sé allt það sem er rauðmerkt og hefði mátt fara betur en gleðst yfir því sem ekkert er hakað við, það fór þá víst vel. Sem betur fer eru þessi góðu atriði fleiri en hin, maður er þá víst að þroskast.
2007 var erfitt ár. Gott fólk féll frá, erfiðar fregnir bárust nánast frá öllum vígstöðvum og þar af leiðandi lagðist maður í mikla naflaskoðun. Hvað er réttast að gera? Hvar er hentugast að búa? Hvað skal gera í skólamálum? Þetta, ásamt svo mörgu fleiru fer á óskráða blaðið og ég vona svo innilega að ég geti horft á þessi atriði óhökuð næstu áramót.
Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég hlakka svolítið til að takast á við að fylla blaðið mitt út, ég veit að það á eftir að taka á, ég veit það verður erfitt en ég trúi því jafnframt að þetta verði skemmtilegt, spennandi og gefandi verkefni.
TABULA RASA!!!
