Sit hér heima á föstudagskvöldi, karlmannslaus og þar af leiðandi nærbuxnalaus. Karl er fyrir austan og nærbuxur eru óhreinar.
Meðan ég rita þessi orð rennur þáttur Loga Bergmanns á stöð 2, ég er gædd þeim hentugu hæfileikum að geta horft á sjónvarp með hnakkanum á meðan ég er í tölvunni! Sniðugt ekki satt?!!
En ok, hún Keití Melúa (veit EKKERT hvernig þetta er skrifað!!!) er að mæma í sjónvarpinu... Hugguleg snót, það verður ekki af henni tekið en ó mæ hvað ég þoli ekki lagið hennar sem er alltaf í útvarpinu þessa daganna, æ þetta „if I were a sailboat I would sail you to the shore...“. Ok lagið er svo sem ágætt en textinn er svo klénn og tjísí að það hálfa væri hellingur!!!
Fór á deit í hádeginu í dag, aðeins að nýta mér það að vera „síngúl“, fór ásamt stelpunum í tanntækninni og kennaranum okkar og var þetta gífurlega hressandi! Kjút og kátar stelpur sem tala hátt og mikið OG hlægja mikið, ég hef fundið mig!!!
Næstu helgi mun gleðin taka völd en þá höldum við Heiða vinkona uppá samanlagt 50 ára ammli! Ok, ég veit að ég á ekki ammli fyrr en í des. en málið er að 7 des. lendir í miðri jólaprófatörn þannig við ákváðum að slá þessu saman og finna dagsetningu sem væri svona mitt á milli okkar. Sneddí!!! Auglýst síðar...
ég og Heiða (ammlisbörnin! ;p) einhvern tímann í lok seinustu aldar
